Gastro Skál 18 cm

By Bitz
Verð 3.990 kr

Bitz Gastro súpuskálin 18 cm er úr sterkum steinleir með möttu ytra byrði og gljáandi innra yfirborði sem gefur fallega birtu og dýpt.

Litur: Svartur/Dökkblár

GASTRO SKÁL 18 CM

Hlý áferð og litbrigði sem vekja athygli

Bitz Gastro súpuskálin 18 cm er úr sterkum steinleir með möttu ytra byrði og gljáandi innra yfirborði sem gefur fallega birtu og dýpt. Hún hentar einstaklega vel fyrir súpur, salöt, núðlur og aðra rétti sem njóta sín best í rúmgóðri skál. Formið er einfalt og tímalaust, með hráu og hlýju yfirbragði sem gerir hana að fallegum hluta hvers borðhalds.

Lifandi borðhald

Gastro línan er hönnuð með næmi fyrir lit, áferð og stemningu. Hver hlutur bætir hlýju og jafnvægi á borðið og minnir á að máltíðir eru augnablik sem má njóta, hvort sem það er einföld súpa, heitur réttur eða kvöldverður með vinum.

Bitz

Bitz sameinar hönnun, lit og efni á einstakan hátt sem gerir máltíðir að upplifun. Hugmyndafræðin byggir á því að heilbrigði eigi að vera raunhæft og að borðhaldið sjálft, samvera, samtöl og stemning stuðli að vellíðan. Vörurnar eru hannaðar til að gera það auðveldara og ánægjulegra að borða meðvitað og njóta matarins í betra jafnvægi.

Nánar um vöruna

Efni & Umhirða

Framleidd úr endingargóðum steinleir með virkum gljáa sem gerir hverja skál einstaka. Þolir uppþvottavél, örbylgjuofn, frysti niður í -18°C og allt að 220° hita í ofni. Mött áferðin að utan og glansandi innra byrðið mynda fallega birtu og dýpt í efninu. Smávægilegar rispur eða litbreytingar eru eðlilegur hluti af hönnuninni.