DOPENER
Snjall dósaopnari sem gerir verkið öruggara og hreinna
Dopener er hannaður til að leysa eitt af algengustu vandamálunum við matreiðsluna á snyrtilegri og öruggari hátt. Ólíkt hefðbundnum opnurum þá sker þetta snjalla tæki lokið af dósinni þannig að engar beittar brúnir myndast, hvorki á lokinu né dósinni sjálfri. Þetta lágmarkar hættuna á meiðslum og gerir meðhöndlun dósanna mun þægilegri. Það sem gerir hann enn snjallari er að þú þarft aldrei að snerta lokið eftir opnun, þar sem tækið heldur fast í það og sleppir því svo beint í ruslið með einum einföldum hnapp.
Tækið er knúið áfram með því að þrýsta handföngunum saman, sem veitir bæði aukinn kraft og stöðugleika svo opnunin verður áreynslulaus og fljótleg. Auk þess að vera frábær dósaopnari þá er Dopener með innbyggðan krók fyrir hringop og snjalla lausn til að hleypa lofti undir þétt krukkulok svo auðveldara sé að snúa þeim af. Þetta er einstaklega fjölhæft áhald sem einfaldar undirbúninginn og sparar pláss í eldhússkúffunni.
Sléttar brúnir án beittra kanta
Þrír eiginleikar í einu tæki



