THE INCREDIBLE ELDFAST MÓT
Lagaðu eldamennskuna að gestunum
The Incredible eldfasta mótið frá Cookut er sniðug lausn fyrir eldamennsku þegar sveigjanleiki og einfaldleiki skipta máli. Með stillanlegu skilrúmi er auðvelt að aðlaga stærð mótsins að rétti dagsins, hvort sem eldað er fyrir fáa eða marga.
Mótið er úr endurunnum málmi og húðað með mineral non stick húðun án PFAS. Það hitnar jafnt, losar matinn auðveldlega og gerir kleift að elda með lítilli eða engri fitu. Létt bygging gerir mótið þægilegt í notkun og auðvelt að taka beint úr ofni og á borð.
The Incredible mótið hentar fyrir allt frá litlum gratínum til stærri ofnrétta og er hugsað sem eitt mót sem leysir af hólmi mörg önnur í eldhúsinu.
Stærðin sem þú þarft hverju sinni
Auðveld eldun og þrif







