Akureyri – Fortíð

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Akureyri séð úr lofti árin 1945, 1960, 1982 og 1998. Veldu árið, útfærsluna og stærðina. Persónuleg gjöf fyrir þann sem á góðar minningar frá Akureyri.

Ár
Útfærsla
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Akureyri – Fortíð

Akureyri séð úr lofti

Fjórar sögulegar loftmyndir sýna hvernig Akureyri breyttist á árunum 1945, 1960, 1982 og 1998. Veldu árið sem tengist þínum minningum eða gefðu mynd af bænum eins og hann leit út á eftirminnilegu ári.

Hvert ár fæst í fjórum útfærslum. Ljós er með ljósum upplýsingaborða neðst, Dökk lætur myndina fylla flötinn, Hringur sýnir bæinn í hringlaga myndfleti og Breið er lárétt loftmynd sem nær yfir Pollinn og flugvöllinn.

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki. Rammi fylgir ekki.

Loftmynd af Akureyri frá 1945, útfærslan Ljós, í ljósum eikarramma í stofu

Akureyri árið 1945

Hér sést loftmyndin frá 1945 í útfærslunni Ljós og stærðinni 50 × 70 cm. Ljós borði neðst á plakatinu ber heiti bæjarins, ártalið og upplýsingar um myndina.

Nærmynd af loftmynd af Akureyri frá 1945

Um Fortíð

Fortíð er myndaröð frá Mistra Design sem byggir á sögulegum loftmyndum. Í nærmyndinni má sjá hvernig götur og hús lágu í bænum árið 1945. Með því að bera árin saman má sjá hvernig byggðin hefur breyst.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í 21 × 30, 30 × 40 og 50 × 70 cm. Ljós, Dökk og Hringur eru lóðrétt. Breið snýr stærðinni lárétt og er því 30 × 21, 40 × 30 eða 70 × 50 cm (breidd × hæð). Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.