The Incredible Panna 28cm

By Cookut
Verð 11.990 kr

Pannan er hönnuð fyrir daglega eldamennsku þar sem góð hitastjórnun skiptir máli. Stærðin hentar vel fyrir stærri skammta og gefur gott vinnusvæði við steikingu á grænmeti, kjöti eða fiski. Pannan er úr málmi með mineral non stick húðun án PTFE og PFOA sem gerir kleift að elda án fitu og tryggir góða losun matar. Hún hitnar jafnt og heldur stöðugum hita, sem gerir eldamennskuna fyrirsjáanlega og áreiðanlega.

Litur: Ljósbleikur

THE INCREDIBLE PANNA 28CM

Klassísk steikingarpanna

Pannan er hönnuð fyrir daglega eldamennsku þar sem góð hitastjórnun skiptir máli. Stærðin hentar vel fyrir stærri skammta og gefur gott vinnusvæði við steikingu á grænmeti, kjöti eða fiski. Pannan er úr málmi með mineral non stick húðun án PTFE og PFOA sem gerir kleift að elda án fitu og tryggir góða losun matar. Hún hitnar jafnt og heldur stöðugum hita, sem gerir eldamennskuna fyrirsjáanlega og áreiðanlega.

Handfangið er úr polymer með viðaráferð og liggur vel í hendi við notkun. Pannan hentar á allar hellugerðir, þar á meðal spanhellu, og er ætluð til áreiðanlegrar notkunar í eldhúsinu.

Jöfn hitadreifing

Pannan er hönnuð til að dreifa hitanum jafnt yfir allt yfirborðið, sem skiptir máli þegar unnið er með stærri skammta eða mismunandi hráefni í einu. Jöfn hitun gerir steikinguna stöðugri, dregur úr hættu á bruna á einstökum svæðum og gefur betri stjórn á eldamennskunni frá upphafi til enda.

Hreint yfirborð og einföld notkun

Mineral non stick húðunin án PTFE og PFOA gerir það að verkum að hráefni losnar auðveldlega af yfirborðinu án þess að festast. Það auðveldar vinnuna við eldun, minnkar þörf á fitu og gerir þrif einfaldari eftir notkun. Pannan er hönnuð fyrir áreiðanlega og þægilega notkun í daglegri eldamennsku.

Cookut

Cookut á rætur sínar að rekja til Frakklands og sameinar hönnun, gæði og umhverfisábyrgð á einstakan hátt. Vörurnar eru hannaðar með sjálfbærni að leiðarljósi, úr náttúrulegum eða endurunnnum efnum og án óþarfa plastnotkunar eða rafmagns. Markmiðið er að draga úr sóun, hvetja til endunýjunar og stuðla að einfaldari og umhverfisvænni lífsstíl þar sem matargerð og samvera skipa lykilhlutverk. Fyrirtækið trúir því að góð hönnun geti breytt viðhorfum til neyslu og stuðlað að ábyrgari lífsstíl. Með því að setja einfaldleika, endunýjun og virðingu fyrir náttúrunni í forgrunn skapar Cookut hagnýtar og fallegar vörur sem endast.

Nánar um vöruna

Efni & Umhirða

Úr endurunnum málmi með mineral non stick húðun án PFAS.

Hentar í ofn og má fara í uppþvottavél.

Ekki ætlað í örbylgjuofn.