Akranes - Rætur

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Bæjarkort af Akranesi þar sem göturnar liggja milli Krókalóns og Langasands. Plakatið er falleg gjöf fyrir þann sem ólst upp á Skaganum eða á þaðan góðar minningar. Fæst í nokkrum litum og þremur stærðum.

Litur: Rökkur
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Akranes – Rætur

Bærinn sem þér þykir vænt um

Viti á ysta odda, þétt byggð við Krókalón og löng strönd við Langasand. Bæjarkortið sýnir hvernig götur Akraness fylgja lögun skagans og sjórinn rammar bæinn inn.

Plakatið nýtur sín vel í einföldum ramma og er falleg gjöf fyrir þann sem þykir vænt um Skagann.

Akranes – Rætur í svörtum ramma

Frá vitanum að Langasandi

Sjórinn umlykur byggðina á kortinu og gefur myndinni rólegt yfirbragð. Í einföldum ramma fá strandlínan og fíngerðar götur bæjarins að njóta sín.

Nærmynd af bæjarkorti af Akranesi

Um Rætur

Rætur er myndaröð frá Mistra Design sem sýnir íslenska bæi séða ofan frá. Litirnir taka mið af hæð landsins. Á kortinu af Akranesi má sjá blágræna tóna meðfram ströndinni og hlýrri liti þar sem landið hækkar.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.