Djúpivogur - Rætur

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Bæjarkort af Djúpavogi þar sem vogar, tangar og götur bæjarins mynda heild. Plakatið fæst í nokkrum litum og þremur stærðum.

Litur: Rökkur
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Djúpivogur – Rætur

Bærinn sem þér þykir vænt um

Strandlínan hlykkjast milli Gleðivíkur og Kaupstaðartanga. Göturnar fylgja lögun landsins og tengja byggðina við höfnina.

Plakatið nýtur sín vel í einföldum ramma og er falleg gjöf fyrir þann sem á góðar minningar úr bænum.

Djúpivogur – Rætur í svörtum ramma

Frá Gleðivík að Kaupstaðartanga

Hér sést 50 × 70 cm plakatið í litnum Rökkri. Dökku tónarnir njóta sín í svörtum ramma með ljósri umgjörð.

Djúpivogur – Rætur · nærmynd af korti

Um Rætur

Rætur er myndaröð frá Mistra Design sem sýnir íslenska bæi séða ofan frá. Litirnir taka mið af hæð landsins. Í nærmynd má fylgja strandlínunni frá Gleðivík að Kaupstaðartanga.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.