Gastro Skál 12 cm

By Bitz
Verð 1.890 kr

Bitz 12 cm skálin, hefur hlýtt og áferðarmikið yfirbragð sem gefur borðhaldinu lifandi karakter. Hún tilheyrir Gastro-línunni, þar sem falleg litbrigði og samspil mattar og gljáandi áferðar skapa náttúrulega fegurð og einstakt yfirbragð.

Litur: Krem/Krem

Hlý áferð og litbrigði sem vekja athygli

Bitz 12 cm skálin, hefur hlýtt og áferðarmikið yfirbragð sem gefur borðhaldinu lifandi karakter. Hún tilheyrir Gastro-línunni, þar sem falleg litbrigði og samspil mattar og gljáandi áferðar skapa náttúrulega fegurð og einstakt yfirbragð. Hver skál er handunnin og hefur sínar eigin litbreytingar og smáatriði sem gera hana ólíka öðrum. Skálin hentar jafnt fyrir smærri meðlæti, forrétti eða eftirrétti og bætir hlýju og stíl við hversdagslegt borðhald.

Lifandi borðhald

Gastro línan er hönnuð með næmi fyrir lit, áferð og stemningu. Hver hlutur er skapaður til að vekja hlýju og gleði við borðið og minna á að borðhald snýst ekki aðeins um matinn, heldur líka augnablikið og samveruna.

Bitz

Bitz sameinar hönnun, lit og efni á einstakan hátt sem gerir máltíðir að upplifun. Hugmyndafræðin byggir á því að heilbrigði eigi að vera raunhæft og að borðhaldið sjálft, samvera, samtöl og stemning stuðli að vellíðan. Vörurnar eru hannaðar til að gera það auðveldara og ánægjulegra að borða meðvitað og njóta matarins í betra jafnvægi.

Nánar um vöruna

Efni & Umhirða

Framleidd úr endingargóðum steinleir sem þolir uppþvottavél, örbylgjuofn og allt að 220° hita í ofni. Gljáinn er handunnin og gefur hverri skál sitt eigið yfirbragð, þar sem litir og mynstrun eru alltaf örlítið ólík.