Herðubreið – Tindar

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Herðubreið í hæðarlínum, séð frá hlið og ofan frá. Fjallaplakat í sex litum og þremur stærðum, falleg gjöf fyrir þann sem á góðar minningar af hálendinu.

Litur: Mjöll
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Herðubreið – Tindar

Drottning íslenskra fjalla

Herðubreið rís ein yfir Ódáðahrauni. Á plakatinu draga fínar hæðarlínur fram breiðan kollinn og brattar hlíðar fjallsins. Fyrir ofan sést sama fjall ofan frá, þar sem línurnar þéttast um tindinn.

Falleg gjöf fyrir þann sem á góðar minningar af hálendinu eða hefur lengi dreymt um að sjá Herðubreið með eigin augum.

Herðubreið í Rökkri, 50 × 70 cm plakat í svörtum ramma á vegg fyrir ofan viðarborð

Herðubreið í Rökkri

Hér sést 50 × 70 cm plakatið í litnum Rökkri. Svarti ramminn og ljós umgjörðin draga fram hlýju tónana í kolli fjallsins.

Nærmynd af tindinum og lituðum hæðarlínum Herðubreiðar í Rökkri

Um Tinda

Tindar er myndaröð frá Mistra Design þar sem íslensk fjöll eru teiknuð með hæðarlínum. Fjallið sést bæði frá hlið og ofan frá. Í nærmyndinni má sjá hvernig línurnar þéttast í bröttum hlíðum Herðubreiðar og víkka út við rætur fjallsins.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.