Baula – Tindar

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Baula í Borgarfirði teiknuð með hæðarlínum. Keilan sést frá hlið og hlíðar fjallsins ofan frá. Fæst í sex litum og þremur stærðum.

Litur: Mjöll
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Baula – Tindar

Keilan í Borgarfirði

Keilulögun Baulu blasir víða við í Borgarfirði. Í myndinni má fylgja hæðarlínunum frá breiðum rótum fjallsins upp að mjóum tindinum. Séð ofan frá kemur óreglulegt form hlíðanna betur í ljós.

Plakat fyrir þann sem þekkir Baulu af ferðalögum um Vesturland eða á sínar rætur í Borgarfirði.

Baula í Rökkri, 50 × 70 cm plakat í svörtum ramma fyrir ofan viðarborð

Baula í Rökkri

Hér sést 50 × 70 cm plakatið í litnum Rökkri. Í Rökkri mynda hlýir tónar í tindinum og kaldari línur við ræturnar skýrt form á dökkum grunni.

Nærmynd af lituðum hæðarlínum á plakatinu Baula – Tindar í Rökkri

Um Tinda

Tindar er myndaröð frá Mistra Design þar sem íslensk fjöll eru teiknuð með hæðarlínum. Fjallið sést bæði frá hlið og ofan frá. Keilulaga tindurinn er í miðju nærmyndarinnar. Þaðan teygja línurnar sig niður eftir hlíðunum.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.