Blönduós - Rætur

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Bæjarkort af Blönduósi þar sem Blanda liðast milli bæjarhlutanna og út í Húnafjörð. Plakatið nýtur sín vel í ramma og fæst í nokkrum litum og þremur stærðum.

Litur: Rökkur
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Blönduós – Rætur

Bærinn sem þér þykir vænt um

Blanda rennur milli bæjarhlutanna og út í Húnafjörð. Ofan frá sést vel hvernig gatan yfir ána tengir hverfin og hvernig byggðin situr við ósinn.

Plakatið nýtur sín vel í einföldum ramma og er falleg gjöf fyrir þann sem á góðar minningar úr bænum.

Blönduós – Rætur í svörtum ramma

Við ósa Blöndu

Blanda liggur eins og breið lína í gegnum myndina. Í einföldum ramma fá áin og fíngert gatnakerfið að njóta sín.

Nærmynd af bæjarkorti af Blönduósi

Um Rætur

Rætur er myndaröð frá Mistra Design sem sýnir íslenska bæi séða ofan frá. Litirnir taka mið af hæð landsins. Hér má fylgja Blöndu í gegnum bæinn og sjá göturnar báðum megin árinnar.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.