Búlandstindur – Tindar

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Búlandstindur við Djúpavog í hæðarlínum. Bratt fjallið sést frá hlið og ofan frá. Falleg gjöf fyrir þann sem á tengsl við Austfirði.

Litur: Mjöll
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Búlandstindur – Tindar

Kennileiti Djúpavogs

Búlandstindur setur svip sinn á landslagið við Djúpavog. Hæðarlínurnar draga fram þríhyrningslaga sniðið og beitta öxl fjallsins. Efst á plakatinu sést hvernig hryggirnir greinast út frá tindinum.

Falleg gjöf fyrir þann sem þekkir fjallið úr Berufirði eða á góðar minningar frá Djúpavogi.

Búlandstindur í Rökkri, 50 × 70 cm plakat í svörtum ramma fyrir ofan viðarborð

Búlandstindur í Rökkri

Hér sést 50 × 70 cm plakatið í litnum Rökkri. Dökki grunnurinn dregur fram skýrt snið fjallsins og litaskiptin frá tindinum niður í hlíðarnar.

Nærmynd af lituðum hæðarlínum á plakatinu Búlandstindur – Tindar í Rökkri

Um Tinda

Tindar er myndaröð frá Mistra Design þar sem íslensk fjöll eru teiknuð með hæðarlínum. Fjallið sést bæði frá hlið og ofan frá. Í nærmyndinni má fylgja línunum niður frá tindinum og sjá hvernig þær sveigja við axlir fjallsins.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í þremur stöðluðum stærðum: 21 × 30 cm, 30 × 40 cm og 50 × 70 cm. Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.