ESTER & ERIK CONE KERTI
Sígilt form sem stendur fyrir sínu
Cone kertið frá ester & erik var upphaflega hannað fyrir jólaskreytingar en hefur fyrir löngu skipað sér sess á heimilum allt árið um kring. Fágað formið nýtur sín eitt og sér eða með kertum í mismunandi hæðum.
Kertið stendur sjálft og býður því upp á fjölbreytta möguleika í uppröðun. Það fer fallega á flötum kertastjaka eða öðru hentugu, hitaþolnu undirlagi. Kertið er framleitt í eigin verksmiðju ester & erik í Danmörku úr 100% ilmefnalausu paraffínvaxi með kveik úr hreinni bómull.
Frá jólaskreytingu að uppáhaldi allt árið
Stendur fallega eitt og sér



