Highland Retreat, Scotland Ilmstangir
HIGHLAND RETREAT, SCOTLAND ILMSTANGIR
Hlýjar stundir við arineldinn
Highland Retreat, Scotland frá Told London sækir innblástur í hálönd Skotlands og hlýjuna innandyra þegar kólnar úti. Ilmurinn opnar með koníaki, reyk, saffrani, bergamót og sítrónu áður en reyktur kanill, negull og leðurtónar taka við. Í grunninum mætast viður, vanilla, moskus og hlýir amburtónar sem gefa ilminum dýpt og mýkt. Ríkulegur ilmur sem minnir á arineld, mjúk teppi og rólegar kvöldstundir.
Ilmstangirnar eru framleiddar í Englandi og koma í postulínsíláti með málmloki og náttúrulegum reyrstöngum. Ílátið ber teikningar eftir bresku listakonuna Kerry Lemon, innblásnar af náttúru og sérkennum Skotlands. Stangirnar draga ilmvökvann upp og dreifa ilminum smám saman um rýmið. Með því að fjölga eða fækka stöngunum má stilla styrk ilmsins eftir stærð rýmis og smekk.
Reykur, krydd og mjúkir viðartónar
Innblásið af hálöndum Skotlands




