IS THAT TRUE?!
Spurningaspil sem ruglar saman staðreyndum og bulli
Giftnir karlmenn gefa betra þjórfé en ógiftir. Hvíta húsið er án heimilisfangs. Þvag tígrisdýrs ilmar eins og smjörpopp. Það hlýtur að vera lygi – eða hvað?! Þetta eru dæmi um spurningar í Is That True?! frá Hygge Games.
Leikurinn inniheldur yfir 400 spurningar sem blanda saman ótrúlegum staðreyndum og alveg út í hött fullyrðingum. Markmiðið er að greina á milli og sjá hver lætur blekkjast. Reglurnar eru einfaldar, spurningarnar fyndnar og hláturinn tryggður. Fullkomið spil til að krydda partý, matarboð eða notalega kvöldstund með vinum og fjölskyldu. Fyrir 2 eða fleiri leikmenn, 14 ára og eldri, spilunartími 15–45 mínútur.
Hvað er satt og hvað er bull?




