Island Breeze, Seychelles Ilmkerti
ISLAND BREEZE, SEYCHELLES ILMKERTI
Hlýja og blóm frá Seychelles-eyjum
Island Breeze, Seychelles frá Told London sækir innblástur í æsku Lillie Edgar á Seychelles-eyjum. Ilmurinn opnar með bougainvillea, ástríðuávexti og alpafjólu áður en jasmína, gardenía, frangipani-blóm, lilja og kókos taka við. Í grunninum mætast patchouli, sandalviður, vanilla, moskus og hlýir amburtónar sem gefa ilminum mýkt og dýpt. Suðrænn blómailmur sem minnir á sólríka daga og hlýtt loft við sjóinn.
Kertið er handsteypt í Englandi úr 100% náttúrulegu sojavaxi með bómullarkveik. Postulínsílátið er skreytt teikningum eftir bresku listakonuna Kerry Lemon, innblásnum af staðnum og minningunum á bak við ilminn. Island Breeze fæst í 80 g og 300 g stærðum. Málmlok fylgir stærra kertinu.
Sólarhlýja í ilmi
Minningar frá eyjunum




