Island Breeze, Seychelles Ilmstangir
ISLAND BREEZE, SEYCHELLES ILMSTANGIR
Hlýja og blóm frá Seychelles-eyjum
Island Breeze, Seychelles frá Told London sækir innblástur í æsku Lillie Edgar á Seychelles-eyjum. Ilmurinn opnar með bougainvillea, ástríðuávexti og alpafjólu áður en jasmína, gardenía, frangipani-blóm, lilja og kókos taka við. Í grunninum mætast patchouli, sandalviður, vanilla, moskus og hlýir amburtónar sem gefa ilminum mýkt og dýpt. Suðrænn blómailmur sem minnir á sólríka daga og hlýtt loft við sjóinn.
Ilmstangirnar eru framleiddar í Englandi og koma í postulínsíláti með málmloki og náttúrulegum reyrstöngum. Ílátið ber teikningar eftir bresku listakonuna Kerry Lemon, innblásnar af staðnum og minningunum á bak við ilminn. Stangirnar draga ilmvökvann upp og dreifa ilminum smám saman um rýmið. Með því að fjölga eða fækka stöngunum má stilla styrk ilmsins eftir stærð rýmis og smekk.
Sólarhlýja á heimilinu
Saga í hverju smáatriði




