ESTER & ERIK KERTI
Sígilt form fyrir fallega stund
Grannt form og fíngerður, oddmjór toppur einkenna kertin frá ester & erik. Þau setja fallegan svip á matarborðið og eiga jafnt við hversdags og þegar lagt er upp með hátíðlega umgjörð.
Kertin eru framleidd í verksmiðju ester & erik í Danmörku úr 100% ilmefnalausu paraffínvaxi með kveik úr hreinni bómull. Keilulaga botninn gerir það að verkum að þau passa í flesta kertastjaka.
Fíngert form sem hefur staðist tímans tönn
Framleidd í Danmörku




