NIGHT BLOOMS, INDIA ILMKERTI
Blóm, ávextir og hlýir kryddtónar
Night Blooms, India frá Told London sækir innblástur í minningar frá Indlandi. Ilmurinn opnar með granatepli, rauðum berjum og rósapipar áður en jasmína, negull og plóma taka við. Í grunninum mætast patchouli, vanilla, sedrusviður, moskus og sandalviður sem gefa ilminum hlýju og dýpt. Ríkulegur ilmur sem hentar vel þegar rökkvar og sest er niður með góðum félagsskap.
Kertið er handsteypt í Englandi úr 100% náttúrulegu sojavaxi með bómullarkveik. Postulínsílátið er skreytt myndum eftir bresku listakonuna Kerry Lemon sem tengjast sögunni á bak við ilminn. Night Blooms fæst í 80 g og 300 g stærðum. Málmlok fylgir stærra kertinu.
Ilmur sem þróast með kvöldinu
Saga í hverju smáatriði


