Selfoss – Fortíð

Tilboðs verð 4,493 kr Verð 5,990 kr

Ölfusá og brúin eru fastir punktar á þremur loftmyndum af Selfossi. Í kringum þær breytast götur, hús og opin svæði á milli ára. Veldu ártal, útfærslu og stærð.

Ár
Útfærsla
Stærð

Rammi fylgir ekki.

Selfoss – Fortíð

Selfoss við Ölfusá

Ölfusá og brúin eru fastir punktar á þremur loftmyndum af Selfossi. Í kringum þær breytast götur, hús og opin svæði á milli ára.

1956 (4. ágúst 1956)
Byggðin liggur nærri brúnni og mikið opið land sést umhverfis hana. Breið er unnin úr næsta ramma sömu flugferðar og sýnir líka Ingólfsfjall.
1984 (4. september 1984)
Götur og hús teygja sig lengra frá brúnni, sunnan Ölfusár. Áin er góður viðmiðunarpunktur þegar borið er saman við 1956.
1991 (9. september 1991)
Þéttari byggð blasir við á suðurbakka árinnar. Leitaðu að brúnni og fylgdu götunum út frá henni til að sjá hvernig bærinn stækkaði.

Ljós – ljós borði neðst með heiti, ártali og myndheimild. Dökk – ljósmyndin fyllir flötinn. Hringur – ljósmyndin er í hringlaga myndfleti. Breið – lárétt útfærsla.

Persónuleg gjöf fyrir þann sem á minningar frá staðnum. Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki. Rammi fylgir ekki.

Selfoss 1956 – Fortíð veggspjald í innrömmun

Selfoss árið 1956

Hér sést loftmyndin frá 1956 í útfærslunni Ljós og stærðinni 50 × 70 cm. Byggðin liggur nærri brúnni og mikið opið land sést umhverfis hana. Breið er unnin úr næsta ramma sömu flugferðar og sýnir líka Ingólfsfjall.

Nærmynd af loftmynd frá 1956 – Selfoss

Um Fortíð

Fortíð er myndaröð frá Mistra Design sem byggir á sögulegum loftmyndum. Brúin og bakkar Ölfusár setja svip sinn á loftmyndina frá 1956.

Mistra Design

Mistra Design er okkar eigið hönnunarmerki. Við sækjum innblástur í íslenska bæi, hverfi og landslag og hönnum plaköt fyrir fólk sem vill hafa staði sem því þykir vænt um á veggnum heima.

Nánar um vöruna

Stærðir og innrömmun

Plakatið fæst í 21 × 30, 30 × 40 og 50 × 70 cm. Ljós, Dökk og Hringur eru lóðrétt. Breið snýr stærðinni lárétt og er því 30 × 21, 40 × 30 eða 70 × 50 cm (breidd × hæð). Rammi fylgir ekki.

Afhending

Við prentum plakatið eftir pöntun og sendum það í svörtum gjafahólki.